Skíðasvæðið opið á morgun laugardaginn 5. des kl 12:00

Þetta er lífið.
Þetta er lífið.

Skíðasvæðið verður opnað á morgun laugardaginn 5. des kl 12:00-16:00 miðað við veðurspá verður veðrið gengið niður um hádegið, eingöngu verða opnar tvær lyftur Neðsta-lyfta og T-lyfta, það er nýr snjór á öllu svæðinu en ég bið skíðamenn að fara varlega í neðstubrekkunni. Nánari upplýsingar um kl 10:00 í fyrramáli.

Boðið verður upp á pipparkökkur, kaffi og gos.

Árskortasala er hafin, hægt er að kaupa þau í fjallinu og eða panta í síma/tölvupóst 893-5059/467-1806/egillrogg@simnet.is, greiða verður fyrir kortin fyrir 1. janúar 2010, verð á barnakorti er kr. 5.000.- , fullorðinskort kr. 11.000.-  , hjónakort kr 21.000.- , ath öll kort hækka 1. janúar um 2.000.- per stk.

Bendi á að árskort 2009 gilda til áramóta, framhaldsskólanemar og æfingakrakkar skíðafélaga fá árskortið 2010 á sama verði og börn og unglingar kr. 5.000.- til áramóta.

Sjáumst hress.

Starfsfólk.