Skíðasvæðið opnum vonandi í næstu viku 2 lyftur, göngubraut um helgina, tilboð á vetrarkortum, uppfærð frétt 3. des

Mynd frá í vetur þegar við þurftum að loka vegna covid, vonandi verður þetta svona í vetur.
Mynd frá í vetur þegar við þurftum að loka vegna covid, vonandi verður þetta svona í vetur.

Nú styttist í gleðina, göngubraut verður lögð um helgina og vonandi getum við opnað í næstu viku 2 lyftur fyrir börn fædd 2005 og yngri. Engin hækkun á vetrarkortum og dagskortum. Tilboð verður á vetrarkortum fram að áramótum. 

Alpakort fullorðins kr 20.000.- Alpakort barna 11-17 ára kr 8.000.- Göngukort fullorðins kr 10.000.- 18 ára og eldri og Alpakort framhalds/háskólanemar kr 12.000.- Alpakort gilda einnig í göngubraut. Eingöngu millifærsla inn á 348-26-1254 kt 640908-0680 og senda kvittun í tp skard@simnet.is