Páskahátíð gulltryggð!

Skíðasvæðið í Skarðsdal verður lokað næstu daga. Það er ekkert veðurútlit og þar að auki er óvissuástand vegna snjóflóðahættu. Við ætlum því að leyfa snjónum að mokast niður og sætum lagi. Þetta er reyndar alveg komið gott hjá okkur í snjósöfnun en það eru komin ansi mörg ár síðan við höfum séð annað eins snjómagn líkt og nú er. Góðu fréttirnar eru hins vegar þær að páskahátíðin er gulltryggð! Nú er ekkert annað að gera en að bræða undir, brýna kantana og láta sér hlakka til komandi páska þar sem við stefnum á alvöru hátíðar og carnival stemningu með lifandi tónlist og partýi! Sjón verður sögu ríkari! Bestu kveðjur frá okkur úr Skarðsdalnum!