Páskadagur 20. apríl opið kl 10-16

Páskadagur opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:30 SSW 2-8m/sek, hiti 1 stig, alskýjað og lítilsháttar éljagangur.


Færið er troðinn þurr snjór ofaná harðfenni. Páskaeggjabraut fyrir 10 ára og yngri á Neðstasvæði kl 13:00. Það getur orðið fjölmenni á svæðinu í dag og hjálpumst að til að Páskaeggjabrautin gangi vel og hliðrum til fyrir börnunum.


Opnum 3 lyftur til að byrja með, það er of hvasst á Búngusvæðið.


Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði kl 12:00 ca 3 km hringur.


Tökum tillit til hvors annar á bílastæðum, miðasölu og við lyftur.


Velkomin í Skarðsdalinn

Starfsmenn