Opið í dag sunnudaginn 6. des

Velkomin á skíði
Velkomin á skíði

Skíðasvæðið opnar í dag kl 11:00-16:00, færið er harðfenni, veðrið A 5-7m/sek, +3 og léttskýjað, lyftur opnar Neðsta-lyfta og T-lyfta, skíðafólk við biðjum ykkur að fara varlega á neðstasvæðinu þar er lítill snjór.

 

Árskortasala er hafin, hægt er að kaupa þau í fjallinu og eða panta í síma/tölvupóst 893-5059/467-1806/egillrogg@simnet.is, greiða verður fyrir kortin fyrir 1. janúar 2010, verð á barnakorti er kr. 5.000.- , fullorðinskort kr. 11.000.-  , hjónakort kr 21.000.- , ath öll kort hækka 1. janúar um 2.000.- per stk.

Bendi á að árskort 2009 gilda til áramóta, framhaldsskólanemar og æfingakrakkar skíðafélaga fá árskortið 2010 á sama verði og börn og unglingar kr. 5.000.- til áramóta.

Sjáumst hress.