Miðvikudaginn 8. desember opið

Hjálmar á Búngutopp
Hjálmar á Búngutopp

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 11:00 norðan gola, frost 1 stig og léttskýjað, færið er unnið harðfenni með nýjum snjó í bland, við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu.

Vetrarkortasala er í fullum gangi og er hægt að kaupa þau í skíðaskálanum og einnig er hægt að hringja í síma 893-5059 eða senda tölvupóst á egillrogg@simnet.is og panta og leggja inn á reikning 1102-26-1254 Kt. 640908-0680 Valló

Nýtt í sambandi við dagskort í fjallið, jólagjöfin í ár, hægt er að kaup eitt stakt kort eða fleiri til að setja t d í jólakortið, gildir virkan dag jafnt sem helgardag, verð á fullorðinskorti er kr 1.500.- og barnakorti kr. 500.-

Velkomin í fjallið starfsfólk