Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 09:00 vestan gola, frost 9 stig og heiðskírt, við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu, færið er troðinn nýr snjór, frábært færi fyrir alla, algert silkifæri í öllum brekkum.
Vetrarkortasala er í fullum gangi, hægt að kaupa þau í skíðaskálanum og einnig er hægt að hringja í síma 893-5059 eða senda tölvupóst á egillrogg@simnet.is og panta og leggja inn á reikning 1102-26-1254 Kt. 640908-0680 Valló
Jólagjöfin í ár, hægt er að kaup eitt stakt dagskort eða fleiri til að setja t d í jólakortið, gildir virkan dag jafnt sem helgi dag, verð á fullorðinskorti er kr 1.500.- og barnakorti kr. 500, sjá hátíðaropnun hér
Starfsfólk.
| 23.des | Þorláksmessudag | kl 14-17 | |||||
| 24.des | Aðfangadagur | kl 11-14 | |||||
| 25.des | Jóladagur | Lokað | |||||
| 26.des | Annar í jólum | kl 12-16 | |||||
| 27.des | Mánudaginn | kl 14-19 | |||||
| 28.des | Þriðjudaginn | kl 14-19 | |||||
| 29.des | Miðvikudaginn | kl 14-19 | |||||
| 30.des | Fimmtudaginn | kl 14-19 | |||||
| 31.des | Gamlársdagur | kl 11-14 | |||||
| 1.jan | Nýársdagur | Lokað | |||||