Miðvikudaginn 19. mars opið kl 14-19

Kl 17:45 höfum við lokað T-lyftu vegna hvassviðris veðrið er NA 8-15m/sek og meira í hviðum.


Ja nú lítur það vel út gott veður og mikið púður.

Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 15:00 austan 2-10m/sek, frost 2 stig og léttskýjað.

Færið er troðinn nýr snjór en það er töluvert mjúkt. Það hefur snjóað ca 1 meter og er mikið púður um allt fjall.


Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km hringur.


Velkomin á skíði í dag.


Starfsmenn