Miðvikudaginn 16. febrúar opið kl 15-19

Þröstur  Ingólfs og Steingrímur Garðars á Búngutopp 2009
Þröstur Ingólfs og Steingrímur Garðars á Búngutopp 2009

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 11:00 er austan gola,  frost 1 stig, alskýjað og smá þoka, það á að létta til þegar líður á daginn, færið er unnið harðfenni og nýr snjór í bland,  gott færi fyrir alla, svo nú er um að gera að drífa sig í fjallið, við opnum kl 15:00 Neðstu-lyftu og T-lyftu en Búngulyfta opnar kl 16:00

Velkomin í fjallið

Starfsfólk