Miðvikudaginn 15. desember opið

Réttingaverkstæði Jóa styrkir skíðasvæðið
Réttingaverkstæði Jóa styrkir skíðasvæðið

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 15-19, veðri kl 12:00 VNV 2-5m/sek, frost 3 stig og léttskýjað við opnum eingöngu Neðstu-lyftu, verið er að vinna T-lyftusvæðið það hefur tekið töluvert upp á öllu svæðinu undanfarna daga en við stefnum á að opna T-lyftusvæði á morgun.

Hátíðaropnun á Skíðasvæðinu.

23.des Þorláksmessudag   kl 14-17  
24.des Aðfangadagur    kl 11-14  
25.des Jóladagur     Lokað  
26.des Annar í jólum   kl 12-16  
27.des Mánudaginn   kl 14-19  
28.des Þriðjudaginn   kl 14-19  
29.des Miðvikudaginn   kl 14-19  
30.des Fimmtudaginn   kl 14-19  
31.des Gamlársdagur   kl 11-14  
1.jan Nýársdagur   Lokað

 

Vetrarkortasala er í fullum gangi og er hægt að kaupa þau í skíðaskálanum og einnig er hægt að hringja í síma 893-5059 eða senda tölvupóst á egillrogg@simnet.is og panta og leggja inn á reikning 1102-26-1254 Kt. 640908-0680 Valló

 Jólagjöfin í ár, hægt er að kaup eitt stakt  dagskort eða fleiri til að setja t d í jólakortið, gildir virkan dag jafnt sem helgi dag, verð á fullorðinskorti er kr 1.500.- og barnakorti kr. 500.

Velkomin í fjallið starfsfólk.