Miðvikudaginn 13. mars opið kl 15-19

Í dag miðvikudaginn 13. mars verður opið frá kl 15-19. Veðrið kl 13:10 logn, hiti 1 stig og lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn nýr blautur snjór en undir er harðfenni.


Áhugasamur einstaklingur, mig vantar brettakennara um helgar fram á vor og sérstaklega í Páskavikunni. Egill Rögg s. 893-5059. 


Skíðakennsla verður í fjallinu um helgar í vetur og byrjar kennslan kl 11:00 bæðið laugardaga og sunnudaga, þessi kennsla er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Gjaldið er 1.500.- per mann í 1/2 tíma en kennarinn getur tekið 2 nemendur á hverjum 1/2 tíma. Kennari er Salóme Rut Kjartansdóttir og er hún með kennsluréttindi.



Velkomin í Skarðsdalinn

Starfsmenn