Mánudaginn 3. mars opið kl 16-19

Það verður opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 15:40 austan gola, frostmark og heiðskírt.


Færið er troðinn nýr þurr snjór og mikið af honum. Snjódýpt á svæðinu er frá 1,5 meter og upp í 7 metra.


Getum ekki opnað fyrr en kl 16:00 vegna ísingar á lyftum og bilunum í troðurum.


Velkomin í fjallið


Höfum tekið í notkun nýtt aðgangsstýrikerfi inn á svæðið.


Nú þurfa allir skíðaiðkendur í Skarðsdalnum að kaupa sér vasakort hvort sem er fyrir dagskort eða vetrarkort. Kortið kostar 1.000 kr og er skilagjaldið 500 kr. Vasakortin eru mjög þægileg því ekki þarf að stinga þeim í lesara, aðgangsbúnaðurinn les kortið í vasa viðkomandi. Vasakortið er fjölnota og hægt nota ár eftir ár. ATH að hægt er að fylla á vasakort úr Bláfjöllum, Hlíðarfjalli og öðrum þeim skíðastöðum sem eru með lesarakerfi.