Mánudaginn 20. desember opið

Það er búið að vera gaman hjá þeim yngstu
Það er búið að vera gaman hjá þeim yngstu

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 11:00 NA 8-13m/sek, frost 5 stig og skafrenningur, við opnum til að byrja með Neðstu-lyftu, en erum með í skoðun að opna T-lyftu, erum að vinna Búngudsvæðið en þar er of hvasst til að opna.

Vetrarkortasala er í fullum gangi, hægt að kaupa þau í skíðaskálanum og einnig er hægt að hringja í síma 893-5059 eða senda tölvupóst á egillrogg@simnet.is og panta og leggja inn á reikning 1102-26-1254 Kt. 640908-0680 Valló

 Jólagjöfin í ár, hægt er að kaup eitt stakt  dagskort eða fleiri til að setja t d í jólakortið, gildir virkan dag jafnt sem helgi dag, verð á fullorðinskorti er kr 1.500.- og barnakorti kr. 500

Starfsfólk.