Mánudaginn 17. janúar opið

Við Neðstu-lyftu 2009
Við Neðstu-lyftu 2009

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 10:30 austan gola, 3 stiga frost, snjóél og er töluvert blint, góð gleraugu bæta skyggnið, færið er troðinn nýr snjór, allar lyftur opnar, það verður ekki troðinn Búngubakkinn þar ætlum við að bjóða upp á púðurskíðun.

Bent er á að nýjustu upplýsingar eru ávallt inn á mbl.is http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544

 

Vetrarkortasala er í fullum gangi, hægt að kaupa þau í skíðaskálanum og einnig er hægt að hringja í síma 893-5059 eða senda tölvupóst á egillrogg@simnet.is og panta og leggja inn á reikning 1102-26-1254 Kt. 640908-0680 Valló.  Hjónakort kr. 25.000.-, Fullorðinskort kr. 15.000.-, Barnakort 7.000.- Tilboð er á vetrarkortum til grunnskólabarna í Fjallabyggð kr. 3.000.- og framhaldsskólanemar frá Fjallabyggð kr 5.000.-

Velkomin í fjallið starfsfólk.