Mánudaginn 17. febrúar opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið er mjög gott austan gola, frost 6 stig og heiðskírt.

Færið er troðinn þurr nýr snjór, mjög gott færi fyrir alla. Flott veðurútlit næstu 3 daga.


Það verður opið alla daga fram að 10. mars, virkadaga frá kl 13-19 og um helgar 10-16


Á Búngusvæði er troðinn Miðbakki 50x950 metrar, Neðrihluti Búngubakka er troðin en ekki efrihluti.


Unnið er að viðgerð á spili svo að við getum troðið Búngubakka.


Velkomin í fjallið