Kæra skíða, bretta og útivistarfólk.
Lokað er í dag vegna veðurs í Skarðsdal. Það skiptist á með rigningu, slyddu og hríðar hraglanda ásamt því að það er orðið töluvert vindasamt hérna uppfrá hjá okkur.
Annars er það að frétta úr fjallinu að framundan er stór helgi, en næstkomandi laugardag (28.02.26) fer fram Stubbamót Krónunnar og SSS þar sem iðkendur fædd 2017 og yngri munu taka yfir brekkurnar og sýna listir sínar. Heldur betur spennandi að fylgjast með því!
Bestu kveðjur úr Skarðsdalnum!