Laugardaginn 8. desember opið kl 11-16

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 14:00 NA 7-11m/sek, 0 stig og léttskýjað, færið er unnið harðfenni.

Nú er veðurstöðin komin inn.

Neðstasvæðið og T-lyftusvæði opið í dag.

Hálslyfta verður tekin formlega í notkun á morgun sunnudaginn 9. desember kl 13:00.  Ég hvet sem flesta að mæta í fjallið á morgun. Vil ég þakka öllum þeim sem komu að byggingu þessarar lyftu, Berg byggingarverktakar, Raffó rafverktakar, JE vélaverkstæði, Bás vinnuvélaverktökum, Rauðkumönnum og starfsmönnum skíðasvæðisins en með samstilltu átaki allra þessara aðila er þetta orðið að veruleika. Ný lyfta, nýtt þjónustuhús á Búngusvæði, bætt og betri lýsing og brekkur lagfærðar. Það eru bjartir tímar framundan á skíðasvæðinu Skarðsdal.

Minni á tilboð á vetrarkortum sem gildir til 15. desember

Velkomin í fjallið