Laugardaginn 5. mars opið kl 10-16

Við neðstu-lyftu jan 2011
Við neðstu-lyftu jan 2011

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 10:20 norðan gola, 0 stig, og alskýjað, færið er unnið harðfenni og það markar ágætlega í snjóinn þannig að það er gott færi fyrir alla.

Farið varlega í Neðstubrekku, þar geta verið grjót sem standa upp úr.

Upplýsingar um stöðu eftir svæðum:

Neðstasvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að  Rjúpnabakka góður og Rjúpnabakki  inni. T-lyftusvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að Hólabraut góður og Þvergil með Bobbbraut og Palla tilbúið, Búngusvæði: Búngubakki inni, Innrileið inni Stálmasturbakki inni og tengileiðir frá Búngusvæði að T-lyftusvæði góðar.

Göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 1,5 km með spori verður til kl 13:00

Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is

http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544

Velkomin í fjallið starfsfólk