Laugardaginn 4. desember opið

Þröstur og Steini Gæ á Búngutopp
Þröstur og Steini Gæ á Búngutopp

Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:00 vestan 6-8m/sek og er upp í 10-16m/sek í hviðum, frost 3 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni, við byrjum á að opna tvær neðstulyfturnar og erum með í skoðun að opna Búngu-lyftu, það verður vestan átt í dag en hann á læga þegar líður á daginn og verður mun hægari á morgun.

Vetrarkortasala er í fullum gangi og er hægt að kaupa þau í skíðaskálanum og einnig er hægt að hringja í síma 893-5059 eða senda tölvupóst á egillrogg@simnet.is og panta og leggja inn á reikning 1102-26-1254 Kt. 640908-0680 Valló

Nýtt í sambandi við dagsmiða í fjallið, jólagjöfin í ár, hægt er að kaup einn stakan miða eða fleiri til að setja t d í jólakortið, gildir virkan dag jafnt sem helgardag, verð á fullorðinsmiða er kr 1.500.- og barnamiði kr. 500.-

Velkomin í fjallið starfsfólk