Laugardaginn 23. janúar opið

Við T-lyftu
Við T-lyftu

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er S-gola, hiti um 3 stig og heiðskírt, gerist ekki betra veður, færið er unnið harðfenni og búið að lina upp allar brekkur, allar lyftur eru keyrðar.

Brekkur sem eru inn í dag eru T-brekka að hluta, Stálmasturbrekka, Þvergilið, brekka fyrir ofan Skíðaskála og það eru allar brekkur inn á Búngusvæðinu. Svæðið er búið að vera opið í 31 dag frá 5. desember.

Velkomin í fjallið starfsmenn