Laugardaginn 19. febrúar opið kl 10-16

Við neðstu-lyftu 17. febrúar 2010
Við neðstu-lyftu 17. febrúar 2010

Nú er góðum degi lokið og var frábært að sjá hvað vel var mætt á svæðið eða um 300 manns sem komu í fjallið, frábær dagur og takk fyrir góðan dag góðir skíðagestir, sjáumst hress á morgun.

Starfsfólk.

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:30 austan gola, hiti 1 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni í bland við nýjan snjó og það markar mjög vel í fyrir alla, s s frábært veður, frábært færi og frábær dalur.

Staða á svæðum:

Neðstasvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að  Rjúpnabakka góður og Rjúpnabakki  inni. T-lyftusvæði: Bakki meðfram lyftu inni, Vegur að Hólabraut góður og Þvergil með Bobbbraut og Palla tilbúið, Búngusvæði: Búngubakki inni, Innrileið inni Stálmasturbakki inni og tengileiðir frá Búngusvæði að T-lyftusvæði góðar.

Göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 1,5 km með spori.

Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is

http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544

Velkomin í fjallið starfsfólk