Laugardaginn 16. mars opið kl 10-16

Í dag laugardaginn verður skíðasvæðið opið frá kl 10-16 og er færið troðinn þurr snjór, veðrið kl 14:00 ANA 2-4m/sek, frost 6 stig og léttskýjað. Aðstæður eru mjög góðar í dag. 


Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur tilbúinn kl 13:00.


Minni á skíðakennslu sem er um helgar og byrjar kl 11:00 báða daga, kennari er Salóme Rut Kjartansdóttir. Hægt er að panta tíma í síma 893-5059 Egill Rögg. Verð per 1/2 tíma er kr 1.500.- per einstakling.


Skiptihelgi er nú í gangi laugardaginn 16 mars og sunnudaginn 17. mars fyrir vetrarkortshafa, endilega að nýta ykkur þennan möguleika til að skoða önnur skíðasvæði norðanlans.

 


Velkomin í Skarðsdalinn

Starfsmenn