Laugardaginn 12. febrúar opið kl 10-16

Við efri enda á T-lyftu ca 520 m y s
Við efri enda á T-lyftu ca 520 m y s

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 er austan gola,  hiti 2 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni, mjög gott færi fyrir alla, svo nú er um að gera að drífa sig í fjallið, allar lyftur í gangi, Hólabraut, Bobbbraut og Pallar í Þvergili, það þarf að fara í T-lyftu til að komast að þessum brautum.

Ps. Göngubraut í Skarðsdalsbotni ca 2 km.

Ps. það þarf að fara varlega í Neðstu-brekku og T-lyftubrekku, það eru grjót sem standa  upp úr, við merkjum þessi svæði með stöngum.

 Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarpi.is

http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544

Velkomin á skíði starfsfólk