Laugardaginn 12. des opið frá 10-16.

Svona getur veðrið verið dásamlegt.
Svona getur veðrið verið dásamlegt.

Skíðasvæðið verður opið í dag kl 10:00-16:00, veðrið er SA gola, +3c, smá rigning og skýjað, færið unnin blautur snjór, við opnum kl 10:00 Neðstu-lyftu og T-lyftu, en stefnum á að opna Búngu-lyftu um kl 13:00. Það er nokkuð gott  færi á T-lyftusvæði en það er mjög gott færi á Búngusvæði.

Ath. Neðstasvæðið er nánast úti og er neðsta-lyftan eingöngu notuð sem flutningsleið upp á efrasvæði, skíðafólk farið varlega það eru víða grjót sem standa upp úr utan troðinna slóða, vegurinn frá efrienda á Neðstu-lyftu og niður að skíðaskála er mjög góð leið að renna sér, förum varlega!!

Ég minni á árskortasöluna, mjög góður kostur.

Velkomin í fjallið.

Starfsmenn