Laugardaginn 10. mars opið kl 10-16

Snjóbrettagæjar á Búngutopp
Snjóbrettagæjar á Búngutopp

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 SSW 2-10m/sek, frost 2 stig og léttskýjað, færið er troðinn nýr snjór mjög gott færi er í öllum brekkum.

Göngubraut verður tilbúinn á Hólssvæði kl 10:00, 3. km braut, létt og góð fyrir alla.

Við starfsmenn hvetjum ykkur til að taka daginn snemma vegna þess að veðurspá er ekki hagstæð þegar líður á daginn.

Upplýsingar um snjódýpt á svæðum: Neðstasvæði er 70-110 cm snjór, T-lyftusvæði 100-140 cm snjór og á Búngusvæði er 150-350 cm snjór.

Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/

Velkomin á skíði í dag starfsmenn