Fyrir það fyrsta þá er lokað í dag 1. apríl vegna veðurs og aðstæðna. Það er ennþá kolófært hingað uppeftir til okkar og mikil vinna eftir í snjómokstri (Þetta er ekki aprílgabb)!
Opnunartímar yfir hátíða verða sem hér segir.
Skírdagur * 10- 16
Föstudagurinn langi * 10-16
Laugardagur * 10 - 16
Páskadagur * 10 - 16
Annar í páskum * 10 - 16
Þessu fylgir síðan að sjálfsögðu að veðrið ræður ávalt för. Því miður þá lítur Skírdagur ekki alveg nægilega vel út eins og staðan er núna. Það spáir suðvestan vindi og hann er afskaplega óhagstæður fyrir Skarðsdalinn. Við hvetjum ykkur til þess að fylgjast með á heimasíðunni og samfélagsmiðlunum okkar þar sem koma nýjar upplýsingar um opnun og dagskrá mjög reglulega.
Góðar stundir.