Fyrsti opnunardagur vetrarins laugardaginn 5. des

Velkomin á Skíði.
Velkomin á Skíði.

Skíðasvæðið opnar í dag kl 12:00-16:00, veðrið hjá okkur er SA 4-8m/sek, +3 á neðstasvæðinu en +1 á T-lyftusvæði, færið er nýr rakur snjór, Neðsta-lyfta og T-lyfta verða opnar, frítt er í lyftur í dag og piparkökkur og drykkir í boði skíðasvæðisins. Við biðjum skíðafólk að fara varlega á neðstasvæðinu, þar er lítill snjór á köflum.

Árskortasala er hafin, hægt er að kaupa þau í fjallinu og eða panta í síma/tölvupóst 893-5059/467-1806/egillrogg@simnet.is, greiða verður fyrir kortin fyrir 1. janúar 2010, verð á barnakorti er kr. 5.000.- , fullorðinskort kr. 11.000.-  , hjónakort kr 21.000.- , ath öll kort hækka 1. janúar um 2.000.- per stk.

Bendi á að árskort 2009 gilda til áramóta, framhaldsskólanemar og æfingakrakkar skíðafélaga fá árskortið 2010 á sama verði og börn og unglingar kr. 5.000.- til áramóta.

Sjáumst hress.

Starfsfólk.