Föstudaginn 8. mars opið kl 15-19

Mynd tekin 23. febrúar 2013 frábærar aðstæður eru nú í Skarðsdalnum
Mynd tekin 23. febrúar 2013 frábærar aðstæður eru nú í Skarðsdalnum
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 15:30 ASA 3-8m/sek, 0 stig og alskýjað en er að birta til. Færið er troðinn þurr snjór. 


Skíðakennsla verður í fjallinu um helgar í vetur og byrjar kennslan kl 11:00 bæðið laugardaga og sunnudaga, þessi kennsla er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Gjaldið er 1.500.- per mann í 1/2 tíma en kennarinn getur tekið 2 nemendur á hverjum 1/2 tíma. Kennari er Salóme Rut Kjartansdóttir og er hún með kennsluréttindi.




Velkomin í Skarðsdalinn

Starfsmenn