Föstudaginn 3. desember opið

Veðrið er dásamlegt
Veðrið er dásamlegt

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 10:00 vestan 2-4m/sek, frost 4 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni, við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu, dagurinn lítur mjög vel út svo nú er um að gera að drífa sig í fjallið.

Í Þvergilinu verum við með hólabraut og palla, Brettafélag Ísland verður í heimsókn þessa helgi og munu gera listir sýnar.

Vetrarkortasala er í fullum gangi og er hægt að kaupa þau í skíðaskálanum og einnig er hægt að hringja í síma 893-5059 eða senda tölvupóst á egillrogg@simnet.is og panta og leggja inn á reikning 1102-26-1254 Kt. 640908-0680 Valló

Nýtt í sambandi við dagsmiða í fjallið, hægt er að kaup einn stakan miða til að setja t d í jólakortið, gildir virkan dag jafnt sem helgardag, verð á fullorðinsmiða er kr 1.500.- og barnamiði kr. 500.-

Velkomin í fjallið starfsfólk