Föstudaginn 25. mars opið kl 13-19

Á Búngusvæði 2010
Á Búngusvæði 2010

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 09:30 vestan gola, frost 2 stig, þokubakkar en sólin kemur í gegn, færið er troðinn þurr snjór allar brekkur mjög góðar.

Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli,  Dalvík og Fjallabyggð geta skíðað á svæðunum um helgina.

Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa.  Þetta verður önnur skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur.

Það verður fullorðins kennsla á miðvikudaginn 30. mars og fimmtudaginn 31. mars kl 18-20, kennari verður Benedikt Hallgrímsson frá Ólafsfirði. Skíðasvæðið lánar þeim sem vilja prófa búnað og er frítt í lyftur. Endilega að nýta ykkur þetta tækifæri. Mjög gott er að tilkynna sig inn í síma 467-1806, það er gott fyrir okkur á sjá hvað margir koma til með að nýta sér þessa kennslu.

Veðurspá dagsins: Hæg breytileg átt og skýjað að mestu. Vestan 5-10 í nótt og á morgun og dálítil súld með köflum. Hiti 0 til 5 stig.

Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is

http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is  http://www.textavarp.is/544

Velkomin í fjallið

Starfsfólk