Föstudaginn 24. febrúar opið kl 13-19

Kl 15:00 eru komir um 200 manns í fjallið, veðrið er frábært og færið einnig mjög gott, nýr snjór um allt fjalla.

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl15:15 logn, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór (púður um allt fjalla) frábært færi fyrir alla.

Göngubraut verður tilbúin á Hólssvæðinu kl 13:00, 3 km hringur, létt og góð braut fyrir alla.

Skiptihelgi fyrir vetrarkortshafa verður helginna 25/2-26/2 Hlíðarfjall, Böggvisstaðafjall, Tindaöxl, Skarðsdalur og Tindastóll.

Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/

Fróðleiksmoli dagsins: Það er gott að vita að í Fjallabyggð eru 11 staðir sem hægt er að kaupa veitingar og gististaðir eru 5 af öllum stærðum og gerðum. Söfnin eru 5 í Fjallabyggð: Náttúrugripasafn, Síldarminjasafn, Þjólagasetur, Ljóðasetur og Skíðaminjasafn.

Velkomin í Fjallabyggð

Starfsmenn skíðasvæðisins í Skarðsdal.