Föstudaginn 2. mars opið kl 13-19

Mynd tekin 1. mars 2012
Mynd tekin 1. mars 2012

Það verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 09:00 SSA gola, hiti 8 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Fjallið lítur mjög vel út nægur snjór út um allt fjall. Langar brekkur stuttar brekkur og allt þar á milli, lengsta skíðaleið er um 2,3 km.

T-lyftusvæði pallar, hólar og frábært gil. Þvergilið bobbbraut, pallar og hólar, Neðstasvæðið hólar og leikjabraut.

Göngubraut tilbúin kl 10:00 á Hólssvæði, 3 km hringur léttur og góður fyrir alla.

Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/

Veður horfur um helginna eru ágætar.

Velkomin á skíði í dag

Starfsmenn