Föstudaginn 18. janúar opið kl 15-19

Nú er bara gaman framundan veðurspá fyrir næstu 8 daga er bara logn, frost og heiðríkja.

Í dag er skíðasvæðið opið frá kl 15-19. Veðrið kl 15:30 SW 2-4m/sek, hiti 0-4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.

Skiptihelgi 19. og 20. jan 2013

Þá er komið að annari skiptihelgi skíðasvæðana á norðurlandi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða.

Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrananna.

Þetta er önnur skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.

Snjór um víða veröld

Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi "World Snow Day" sunnudaginn 20. janúar. Þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að hvetja börn til skíðaiðkunar.

Í tilefni dagsins er frítt fyrir þá sem eru yngri en 18. ára í Skarðsdalinn og  20% aflsátt í skíðaleigu.

Velkomin í Skarðsdalinn Egill, Óðinn, Kári, Björn og Birgir