Föstudaginn 10. apríl opið kl 14-19

Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 17:30 ANA 8-14m/sek, hiti 1 stig og alskýjað. Færið er frábært troðinn þurr snjór, bezta færið í vetur og mikið af snjó.


Þessi dagur verður frábær og takið daginn snemma. 


Sjáumst hress í Skarðsdalnum


Skarðsrennslið 16. maí kl 13:00 Þetta er skemmti-risasvig og er tími tekinn á handklukkur. Frá Illviðrishnjúk og niður að skíðaskála ca 3 km braut. Keppni fer fram í karla og kvenna flokkum 18 ára og eldri, einnig er keppt í unglinga og barnaflokkum stúlkur og drengir. Verðlaun eru fyrir 3 fyrstu sætin. Gjald fyrir 18 ára og eldri er 3.000.- Skráning á staðnum. Veitingar eftir keppni við skála