Fimmtudaginn 6. janúar þrettándinn lokað v/veðurs

Svona getur Skarðsdalurinn verið fagur.
Svona getur Skarðsdalurinn verið fagur.

Í dag 6. janúar er lokað vegna veðurs, veðrið kl 12:00 er NA 10-18m/sek og fer upp í 20-30m/sek í hviðum, frost um 13 stig, það er töluverður skafrenningur og það góða við veðrið er að við erum að fá töluverðan snjó á svæðið og eru starfsmenn mjög ánægðir með þessa stöðu.

Stefnum á að opna á morgun föstudaginn 7. janúar kl 15, nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun, endilega að hringja í upplýsinagsíman sem er 878-3399 þar eru alltaf nýjustu upplýsingar og að sjálfsögðu inn á heimsíðu.

Vetrarkortasala er í fullum gangi, hægt að kaupa þau í skíðaskálanum og einnig er hægt að hringja í síma 893-5059 eða senda tölvupóst á egillrogg@simnet.is og panta og leggja inn á reikning 1102-26-1254 Kt. 640908-0680 Valló.  Hjónakort kr. 25.000.-, Fullorðinskort kr. 15.000.-, Barnakort 7.000.- Tilboð er á vetrarkortum til grunnskólabarna í Fjallabyggð kr. 3.000.- og framhaldsskólanemar frá Fjallabyggð kr 5.000.-

 

Einnig er hægt að kaupa vetrarpassa (Eyjafjarðarpassi) sem gildir á 4. svæðum Siglufirði, Ólafsfirði, Dalvík og Akureyri

Verð: Fullorðinskort 44.750 kr. Barnakort 23.500 kr.

Fjögur skíðasvæði einn vetrarpassi - skíðasvæðin á Eyjafjarðarsvæðinu. Kortin verða seld á vasakort / rafræn kort en aðeins hægt að gefa þau út í Hlíðarfjalli og á Dalvík.  Ef einhver vill kaupa kort á Siglufirði eða Ólafsfirði þarf viðkomandi að senda mynd af sér og við munum gefa út kortið og senda viðkomandi tilbaka.  Hægt er að uppfæra hefðbundin kort yfir í Eyjafjarðarkort.

Í vetur verða þrjár skiptihelgar á staðbundnum árskortum. Nánar auglýst síðar.

Starfsmenn