Fimmtudaginn 4. febrúar opið

Þessir eru duglegastir að mæta í fjallið
Þessir eru duglegastir að mæta í fjallið

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið er Austan 4-7m/sek, smá éljagangur, frost um 5 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór það hefur snjóað aðeins hjá okkur svo að færið er mjög gott í öllum brekkum sem troðnar eru og enginn þarf að hræðast færið, það er mjög gott færi fyrir alla og allar lyftur keyrðar.

Við höfum útbúið gönguhring í Skarðdalsbotni að vestan.

Brekkur sem eru inn í dag eru T-brekka að hluta, Stálmasturbrekka, Þvergilið, brekka fyrir ofan Skíðaskála og það eru allar brekkur inn á Búngusvæðinu. Svæðið er búið að vera opið í 37 dag frá 5. desember.

Velkomin í fjallið starfsmenn