Fimmtudaginn 28. febrúar opið kl 13-19

Ath. það verður opið í dag fimmtudaginn 28.febrúar og föstudaginn 1. mars kl 13-19.


Í dag verður opið frá kl 13-19. Veðrið kl 17:00 SA gola, hiti 2 stig og alskýjað. Færið er unnið harðfenni en það hefur aðeins snjóað ofan-á og er færið ágætlega mjúkt fyrir alla.


Skíðakennsla verður í fjallinu um helgar í vetur og byrjar kennslan kl 11:00 bæðið laugardaga og sunnudaga, þessi kennsla er bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Gjaldið er 1.500.- per mann í 1/2 tíma en kennarinn getur tekið 2 nemendur á hverjum 1/2 tíma. Kennari er Salóme Rut Kjartansdóttir og er hún með kennsluréttindi.
 


Velkomin í Skarðsdalinn

Starfsmenn