Fimmtudaginn 17. janúar opið kl 15-20

Nú er bara gaman framundan veðurspá fyrir næstu 8 daga er bara logn, frost og heiðríkja.

Í dag er skíðasvæðið opið frá kl 15-20. Veðrið kl 17:45 Logn, hiti 0-3 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór.

Velkomin í Skarðsdalinn

Starfsmenn

Skiptihelgi 19. og 20. jan 2013

15. janúar 2013

Þá er komið að annari skiptihelgi skíðasvæðana á norðurlandi. Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði og Sauðárkrók geta skíðað að vild á svæðunum um næstu helgi. Vetrarkortshafar þessara skíðasvæða þurfa að framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skiðasvæðis og fá þá afhenta lyftumiða.

Þetta er þriðji veturinn sem boðið er upp á skiptihelgar og gefur skíða- og brettafólki kost á að heimsækja nágrananna.

Þetta er önnur skiptihelgin af 5 en stefnt er að því að vera með eina slíka í hverjum mánuði fram á vor.

Snjór um víða veröld

14. janúar 2013

Alþjóða skíðasambandið FIS stendur fyrir sérstökum degi "World Snow Day" sunnudaginn 20. janúar. Þar sem aðildarþjóðirnar eru hvattar til að hvetja börn til skíðaiðkunar.

Í tilefni dagsins er frítt fyrir þá sem eru yngri en 18. ára í Skarðsdalinn og  20% aflsátt í skíðaleigu.

Umsjónamaður Egill Rögnvaldsson