7-8. apríl verður lokað

Allt gekk mjög vel, takk öll fyrir komuna
Allt gekk mjög vel, takk öll fyrir komuna
Skíðasvæðið verður lokað 7 og 8 apríl, opnum aftur 9. apríl.


Við starfsmenn svæðisins viljum koma á framfæri innilegu þakklæti til ykkar allra sem heimsóttu okkur í dymbilvikunnu, en gestir voru 3000 þessa daga og þið voruð öll til fyrirmyndar, sjáumst hress í Skarðsdalnum.


Svæðið verður opið allar helgar í maí, 2. maí fer fram Fjallaskíðamót og 16. maí verður Skarðsrennslið. Auglýsingaplaköt koma inn á síðuna nú í vikunni.


Starfsmenn í dymbilvikunni, strákarnir stóðu sýna plikt með kurt og pí.

Sigurjón, Kári, Hilmar, Óðinn, Torfi. Kristófer og Sigurður

Egill umsjónarmaður